Halla Hrund keypti sérbýli á 150 milljónir

Halla Hrund Logadóttir forsetaframjóðandi og alþingismaður Framsóknarflokksins hefur fest kaup …
Halla Hrund Logadóttir forsetaframjóðandi og alþingismaður Framsóknarflokksins hefur fest kaup á raðhúsi í Árbænum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Halla Hrund Logadóttir, forsetaframbjóðandi og alþingismaður, hefur fest kaup á raðhúsi í Selásnum ásamt eiginmanni sínum Kristjáni Frey Kristjánssyni. Um er að ræða 203,7 fm endaraðhús sem er á góðum útsýnisstað í hverfinu. Húsið var reist 1984 og hefur verið vel við haldið.

Húsið keyptu þau af frumbyggjum í hverfinu og því er ekki búið að taka húsið í gegn mörgum sinnum af mismunandi aðilum. Frumbyggjarnir nostruðu við húsið og hafa gert frá fyrstu tíð.

Um er að ræða pallahús þar sem bílskúr, eldhús eru á miðhæð, stofa á efstu hæð og herbergi á neðsta pallinum. Engin byggð er fyrir neðan húsið sem státar af útsýni yfir Breiðholtið og Elliðaárdalinn. 

Úr Fossvogi í Selás

Halla Hrund og Kristján greiddu 150.000.000 kr. fyrir húsið. Þau seldu íbúð sína í Fossvogi á dögunum og fengu 99.400.000 kr. fyrir hana. 

Halla Hrund er alin upp í Árbænum og því má segja að hún sé komin heim og líka á góðan stað því það er sérstaklega góður andi í þessu pallaraðhúsi. Í kosningabaráttunni í fyrra, þegar Halla Tómasdóttir var kosin forseti Íslands, gerði Halla Hrund töluvert úr því að hafa verið alin upp í blokk. Átti slíkt tal að að höfða til láglaunafólks í landinu og þeirra sem höfðu minna á milli handanna. En svo kom í ljós að Halla Hrund var líka alin upp í einbýlishúsi. Því fór sem fór. 

Smartland óskar hjónunum til hamingju með sérbýlið! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »