Við Brúnaland í Fossvogi er fallegt raðhús fyrir neðan götu til sölu. Raðhúsið var byggt árið 1968 og er upprunalegt með suðurgarði og suðursvölum. Fossvogurinn er þekktur fyrir mikla veðursæld svo þetta hljómar sem draumur í margra augum.
Húsið er 250 fm og skiptist eignin í fjögur svefnherbergi, stofu, sjónvarpshol, borðstofu, eldhús, þvottahús, geymslu, baðherbergi, sánuklefa og rúmgóð rými á neðsta palli.
Auðvelt er að bæta við auka svefnherbergi ef þarf á neðsta palli hússins.
Húsið er upprunalegt og alls líklegt að verðandi kaupendur vilji breyta einhverju. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir þá framkvæmdaglöðu og handlögnu sem vilja láta ljós sitt skína í innanhússhönnun. Hins vegar væri ráð að halda í þá eiginleika sem gera húsið fegra eins og rimlavegginn í stofunni og ljósbleiku flísarnar á einu baðherbergjanna.