Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Tals og varaformaður í stjórnar Sýnar, hefur fest kaup á glæsilegu parhúsi sem er staðsett í Akrahverfinu í Garðabæ. Um er að ræða 276,4 fm raðhús sem reist var 2017.
Húsið er á tveimur hæðum og býr yfir ýmsum töfrandi atriðum. Í stofunni er til dæmis sex metra lofthæð sem er sjaldgæf í parhúsum á Íslandi. Þegar húsið var auglýst til sölu 2021 kom fram að það væru HTH-innréttingar í eldhúsinu og á baðherbergjum og var húsið selt á 175.000.000 kr.
Petrea greiddi 290.000.000 kr. fyrir húsið sem var sett upp í einbýlishús við Góðakur sem var í hennar eigu. Kristinn Páll Guðmundsson og Telma Björk Fjalarsdóttir, kaupendur Góðakurs, settu parhúsið við Byggakur 22 upp í einbýlið sem selt var á 380.000.000 kr. Má segja að þau hafi ávaxtað pund sitt vel en hækkunin nemur 115.000.000 kr. á fjórum árum.
Smarland óskar Petreu til hamingju með húsið!