Fólk sem elskar Kaffibarinn mun fagna

Fuglahúsið er fallegt og fer vel úti í garði.
Fuglahúsið er fallegt og fer vel úti í garði. Ljósmynd/Ingibjörg Torfadóttir

Hjalti Karlsson hönnuður hjá Karlsonwilker í New York hefur sópað að sér verðlaunum í gegnum tíðina. Nú hefur hann hannað enn eina snilldina sem er fuglahús sem er eins og Kaffibarinn. Verkefnið vann hann í samstarfi við húsgagnaverslunina Epal sem er 50 ára í ár. 

Kaffibarinn fuglahús hefur að geyma flöskuopnara og hentar því bæði innanhúss og utanhúss. 

Fuglahúsið er eftirlíking af einum elsta bar Reykjavíkur sem hefur þjónað þyrstu fólki frá árinu 1993. Fastagestir staðarins eru líklega flestir hættir að geta vakað fram á nætur og djammað eins og enginn sé morgundagurinn. Því ætti Kaffibars-fuglahús að geta glatt þá sem hafa öðrum hnöppum að hneppa. Með því að horfa á fuglahús Kaffibarsins má kalla fram góðar djamm-minningar þegar reykja mátti inni og ýmislegt fleira sem ekki verður rifjað upp hér. 

Hægt er að opna flöskur með flöskuopnara sem er á …
Hægt er að opna flöskur með flöskuopnara sem er á húsinu. Ljósmynd/Ingibjörg Torfadóttir
Kaffibarinn fuglahús fæst á epal.is og kostar 9.999 krónur.
Kaffibarinn fuglahús fæst á epal.is og kostar 9.999 krónur. Ljósmynd/Ingibjörg Torfadóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »