Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, fjölmiðlastjarna og markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, og eiginmaður hennar Haraldur Haraldsson deildarstjóri hjá Icelandair hafa sett einbýlishús sitt á Akranesi á sölu. Um er að ræða 184 fm einbýli sem reist var 1978.
Eva Laufey og Haraldur hafa nostrað við húsið og gert það upp á smekklegan hátt. Í eldhúsinu er til dæmis falleg sérsmíðað eldhús frá Brúnás sem notað hefur verið sem tökustaður í vinsæla matreiðsluþætti sem Eva Laufey hefur gert í gegnum tíðina.
Ljósir litir og flauelshúsgögn mætast á rómantískan hátt á þessu einnar hæða húsi sem nú leitar að nýjum eiganda.
Hægt er að skoða húsið nánar á fasteignavef mbl.is: Reynigrund 39