Besta ráðið við hormónabólum

Til að ná sem bestum árangri í bólumeðferð er mikilvægt …
Til að ná sem bestum árangri í bólumeðferð er mikilvægt að hugsa vel um húðina, nota réttar húðvörur og fylgja leiðbeiningum um lyf. Þar myndi ég segja mikilvægast að nota salicylsýruhreinsi á morgnana til að hreinsa húðina en það er fituleysanleg sýra sem hreinsar vel stíflur í húðinni. Samsett mynd

Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlæknastöðinni og Húðvaktinni, svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá 19 ára gamalli stúlku sem er að kljást við hormónabólur.

Hæ hæ

Ég er 19 ára og fæ hormónabólur alltaf á sama tíma í tíðahringnum. Þær koma í kringum munninn og stundum á kinnarnar. Ertu með einhver ráð við því?

Kveðja, 

HGG

Sæl og blessuð. 

Bólur myndast vegna þriggja meginvandamála:

  1. Hormónaóregla
  2. Of mikil olíuframleiðsla í húðinni og þ.a.l. stífur og fílapenslar
  3. Bólgumyndun og graftarbólumyndun vegna baktería sem sýkja stíflaða kirtla.

Ef við tökum fyrir fyrsta liðinn, sem virðist vera undirliggjandi vandamálið hjá þér, þar sem þú finnur mikil tengsl við blæðingar, þá myndi hjálpa þér verulega að fara á samsettu getnaðarvarnarpilluna, t.d. Drovelis eða Yasmin, til að jafna hormónin þín. Vel hægt að ræða það við heimilislækninn þinn við tækifæri.

Ef við vindum okkur svo í lið tvö, sem fjallar um of mikla olíuframleiðslu í húðinni þá myndi retinól eða A-vítamínkrem hjálpa verulega. Þú getur keypt retinól án lyfseðils, t.d. frá SkinCeuticals og Pharmaceris, og athugað hvort það dugi ekki til. Ef það dugar ekki til þá þarf eitthvað sterkara A-vítamínkrem, eins og t.d. Differin-gel, sem minnkar olíuframleiðsluna og stíflurnar. Yfirleitt duga þessi ráð til að meðhöndla vægan og meðalslæman bólusjúkdóm en ef þessi ráð duga ekki til þá þarf að leita til húðlæknis og fá sterkari lyf.

Til að ná sem bestum árangri í bólumeðferð er mikilvægt að hugsa vel um húðina, nota réttar húðvörur og fylgja leiðbeiningum um lyf. Þar myndi ég segja mikilvægast að nota salicylsýruhreinsi á morgnana til að hreinsa húðina en það er fituleysanleg sýra sem hreinsar vel stíflur í húðinni.

Endilega kynntu þér hvernig er best að hugsa um bólukennda húð og hvaða vörur er gott að nota hér á heimasíðu Húðvaktarinnar. 

Ég mæli einnig með bóluþáttum Húðkastsins til að fá enn dýpri þekkingu.

Kær kveðja, 

Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlæknastöðinni og Húðvaktinni. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Jennu Huld spurningu HÉR.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda

OSZAR »