Páll Vilhjálmsson
Páll Vilhjálmsson

Landsréttur sýknaði í gær Pál Vilhjálmsson, pistlahöfund og fyrrverandi blaðamann, af kröfum Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Heimildinni, um ómerkingu fjölmargra ummæla og greiðslu miskabóta vegna færslna sem birtust á bloggsíðu Páls á tímabilinu frá apríl 2022 til apríl 2023.

Í færslunum fullyrti Páll m.a. að Aðalsteinn hefði átt aðild að byrlun og þjófnaði á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra í tengslum við umfjöllun um fyrirtækið Samherja. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að þótt ummæli Páls væru beinskeytt og óvægin yrði að líta til þess að Aðalsteinn hefði á þeim tíma haft stöðu sakbornings hjá lögreglu vegna rannsóknar á mögulegri aðild að brotum gegn friðhelgi einkalífs.