
Steinþór Guðbjartsson
Karlakórinn Fóstbræður á sér um 109 ára sögu og honum fylgja margir dyggir stuðningsmenn. Einn þeirra fagnaði 102 ára afmæli sínu 13. júní sl. og fékk óskalag á tónleikum kórsins í Trekroner-kirkjunni í Hróarskeldu í Danmörku þremur dögum síðar. Aðdáandinn hafði hlýtt á kórinn einu sinni áður, í Kaupmannahöfn 1996, þegar kórinn var á söngferðalagi um Norðurlöndin, en hefur auk þess hlýtt á söng hans af geisladiskum í gegnum árin.
Hjónin Nanna K. Sigurðardóttir og Smári S. Sigurðsson kynntust Önnu Petersen, fatahönnuði og fjölskylduráðgjafa, á námsárum sínum í Danmörku fyrir rúmlega hálfri öld og hafa þau haldið góðu sambandi síðan. Anna hefur mjög oft komið til Íslands og þau hafa heimsótt hana. „Nanna og Anna hafa átt langa og farsæla vináttu,“ áréttar
...