Markaðskerfin Elma og Vonarskarð bjóða raforkuviðskipti á íslenskum raforkumarkaði, hvort með sínum hætti. Raforkumarkaður Evrópu er til viðmiðunar.

Hákon Skúlason, Skúli Jóhannsson

Meðfylgjandi tafla sýnir framleiðslu raforku innan Evrópusambandsins (ESB) árið 2024 skipt niður á tegundir virkjana. Samkvæmt staðfestingu frá EMBER stendur ESB-27 fyrir núverandi hóp ríkja innan ESB, en utan þess hóps er Bretland, en einnig Ísland, Noregur og Liechtenstein, sem eru þátttakendur í Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Sólarorku þarf að framleiða meðan sólin skín og vindorku þegar vindur blæs. Ef þessar tegundir orku vantar þarf kerfið sem fyrir er að fylla upp í það sem á vantar. Nýlegir atburðir á Spáni og í Portúgal benda til að með hækkandi hlutdeild sólar- og vindorkustöðva þurfi Evrópubúar að vera vel á verði með raforkuframleiðsluna í náinni framtíð.

Íslenska raforkukerfið

...