Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi svarað neyðarkalli Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA), en tilkynnt var í gær að utanríkisráðherra hefði samþykkt að veita UNRWA…
Mannúðaraðstoð UNRWA sinnir m.a. neyðaraðstoð á Gasasvæðinu.
Mannúðaraðstoð UNRWA sinnir m.a. neyðaraðstoð á Gasasvæðinu. — AFP/Eyad Baba

Signý Pála Pálsdóttir

[email protected]

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið að hún hafi svarað neyðarkalli Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA), en tilkynnt var í gær að utanríkisráðherra hefði samþykkt að veita UNRWA viðbótarframlag upp á 150 milljónir króna vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs.

Þorgerður Katrín segir UNRWA hafa fengið á sig ýmsa gagnrýni á undanförnum misserum. Evrópusambandið og Bretland séu hins vegar ánægð með hvernig stofnunin hafi brugðist við þeirri gagnrýni og hvernig hún hafi framfylgt tillögum um umbætur.

Ísland hefur ramma fyrir neyðar- og mannúðaraðstoð og segir Þorgerður að stjórnvöld nýti þann ramma í þetta neyðarkall. Hún segir mikilvægt að sýna Palestínumönnum að þeir séu

...