Emmanuel Macron
Emmanuel Macron

Emmanuel Macron Frakklandsforseti og Friedrich Merz Þýskalandskanslari sögðu í gær að þeir vildu að Evrópusambandið myndi ná samkomulagi við Bandaríkjastjórn um tollamálin sem fyrst, en nú eru innan við tvær vikur áður en fyrirhugaðir tollar Bandaríkjastjórnar á ESB eiga að taka gildi.

Leiðtogar aðildarríkjanna 27 funduðu í gær í Brussel og var staða tolladeilunnar við Bandaríkin þar ofarlega á baugi.

Macron sagði við blaðamenn í gær að Frakkar vildu ekki draga viðræðurnar á langinn. Hins vegar myndu Evrópuríkin ekki sætta sig við hvaða kjör sem byðust.