Jómfrúartorgið Þær Selma og Hansa koma fram á laugardaginn.
Jómfrúartorgið Þær Selma og Hansa koma fram á laugardaginn.

Söngkonurnar Selma og Hansa koma fram á fjórðu tónleikum Sumarjazz-tónleikaraðar veitingastaðarins Jómfrúarinnar við Lækjargötu á laugardaginn, 28. júní, klukkan 15, að því er segir í tilkynningu um viðburðinn. Auk þeirra skipa hljómsveitina þeir Agnar Már Magnússon á píanó, Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa og Einar Scheving á trommur. Þá segir jafnframt að boðið verði upp á skemmtilega söngleikjatónlist í djassbúningi. Tónleikarnir, sem standa til klukkan 17, fara fram utandyra á Jómfrúartorginu en aðgangur er ókeypis.