Dagbjört Hákonardóttir
Dagbjört Hákonardóttir

Ísland og Kanada eiga sér langa og þétta sögu sem bandamenn á norðurslóðum. Flest eigum við þar ættingja í Íslendingabyggðum Manitoba og enn er að finna veðurfréttir frá Winnipeg á síðum Morgunblaðsins (þar var 17 gráðu hiti í gær). Rétt er þó að árétta að Toronto, fjölmennasta borg landsins, er á sömu breiddargráðu og Barcelona á Spáni. Það breytir því ekki að stór hluti landsins liggur norðan við heimskautsbaug og sameiginlegir hagsmunir okkar af öflugum viðnámsþrótti og hagsmunagæslu á svæðinu eru ótvíræðir.

Milliríkjasamskipti Íslands og Kanada byggjast á traustum grunni sameiginlegra gilda, landfræðilegri nálægð og gagnkvæmum hagsmunum í öryggis- og utanríkismálum. Þjóðirnar gerðu með sér fríverslunarsamning árið 2009 og hafa tengslin verið ræktuð enn frekar með samstarfi innan NATO þar sem bæði lönd voru stofnmeðlimir.

Í byrjun vikunnar undirrituðu

...

Höfundur: Dagbjört Hákonardóttir