Óvíst er hverjir verða leigutakar á urriðasvæðunum í Laxá í S-Þingeyjarsýslu frá næsta ári eftir að Fiskistofa ógilti ákvörðun félagsfundar Veiðifélags Laxár og Krákár um að samþykkja tilboð Stangaveiðifélags Reykjavíkur

— Morgunblaðið/Einar Falur
Kristján Jónsson
Óvíst er hverjir verða leigutakar á urriðasvæðunum í Laxá í S-Þingeyjarsýslu frá næsta ári eftir að Fiskistofa ógilti ákvörðun félagsfundar Veiðifélags Laxár og Krákár um að samþykkja tilboð Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Á félagsfundi Veiðifélags Laxár og Krákár í september á síðasta ári var samþykkt tilboð Stangaveiðifélags Reykjavíkur um veiðirétt á urriðasvæðunum í Laxá. Þrjár kærur bárust Fiskistofu í framhaldinu frá landeigendum um lögmæti fundarins og ákvarðana sem þar voru teknar. Fiskistofa úrskurðaði kærendum í vil á dögunum.
„Við vorum þrír landeigendur í Laxárdal og Mývatnssveit sem vorum mjög ósáttir við vinnubrögð stjórnar Veiðifélags Laxár og Krákár og ákváðum að kæra þennan fund sem haldinn var
...