Ánægðar Unnur Thelma Gestsdóttir verslunarstjóri og Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri.
Ánægðar Unnur Thelma Gestsdóttir verslunarstjóri og Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri.

Verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi verður opnuð að nýju í dag, fimmtudaginn 5. júní eftir umfangsmiklar endurbætur. Þessi verslun hefur verið starfrækt í alls 12 ár og nú þótti kominn tími á yfirhalningu. „Eftir endurbætur getum við betur mætt fjölbreyttum þörfum viðskiptavina og innleitt ýmsar nýjungar í takt við þarfir nútímans,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Opnunartími nú verður lengdur jafnhliða breyttri búð. Opnað verður klukkan 8 á morgnana, sem Guðrún telur viðskiptavini kunna vel að meta.

„Við leggjum sem endranær áherslu á ferskleika, fjölbreytt vöruúrval og hagstætt verð. Þá höfum bætt bæði flæði og rými fyrir viðskiptavini í versluninni,“ segir Guðrún. Hún bendir á að fjölmargir aðilar komi að svona verkefni og megi þar nefna starfsfólk Krónunnar og Festi, iðnaðarmenn

...