Um 83% sjúkraflutningamanna sem starfa í bakvaktakerfi í dreifðari byggðum landsins telja sig ekki fá nægilega sí- og endurmenntun til að viðhalda hæfni í starfi samkvæmt verkefni sem unnið var af nemendum í Háskólanum á Bifröst
Sjúkraflutningar Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að staðan er ekki viðunandi.
Sjúkraflutningar Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að staðan er ekki viðunandi. — Morgunblaðið/Eggert

Kristján Jónsson

[email protected]

Um 83% sjúkraflutningamanna sem starfa í bakvaktakerfi í dreifðari byggðum landsins telja sig ekki fá nægilega sí- og endurmenntun til að viðhalda hæfni í starfi samkvæmt verkefni sem unnið var af nemendum í Háskólanum á Bifröst.

„Skýringin getur þá verið sú að þetta fólk sinni öðrum störfum og þá jafnvel í fullu starfi annars staðar. Það hleypur í útköll þegar á þarf að halda. Erfitt er að gera kröfur til fólks um að sinna endurmenntun þess utan í frítíma sínum,“ segir Bjarni Ingimarsson, einn nemendanna sem unnu að verkefninu, en hann er jafnframt formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Þekkir hann því starfið afar vel.

Með honum unnu þau Erna Björg Jónmundsdóttir, Heiðar Örn Jónsson,

...