Veðrið í maímánuði lék við landann og aldrei hefur íslenska vorið mælst jafn hlýtt frá upphafi mælinga. Árið 2025 hefur verið óvenju hlýtt og er þetta næsthlýjasta ársbyrjun síðastliðin 75 ár. Hitamet maímánaðar ársins 1974 voru slegin í ár og var afar hlýtt og bjart á landinu

Hitamet Veðrið lék við landsmenn í maímánuði, sem sló öll met.
— Morgunblaðið/Eyþór
Diljá Valdimarsdóttir
Veðrið í maímánuði lék við landann og aldrei hefur íslenska vorið mælst jafn hlýtt frá upphafi mælinga. Árið 2025 hefur verið óvenju hlýtt og er þetta næsthlýjasta ársbyrjun síðastliðin 75 ár.
Hitamet maímánaðar ársins 1974 voru slegin í ár og var afar hlýtt og bjart á landinu. Trausti Jónsson veðurfræðingur greinir frá þessu á bloggsíðu sinni þar sem hann segir jafnframt að sólskinsstundir hafi mælst 179 talsins í maí.
Hitabylgja í maí
Samkvæmt Veðurstofu Íslands varð mesta hitabylgja sem vitað er um í maímánuði hérlendis. Hitinn mældist 20 stig eða meira einhvers staðar
...