
— Ljósmynd/HBO
J.K. Rowling hefur lýst yfir ánægju með nýju aðalleikarana í væntanlegri Harry Potter-þáttaröð hjá HBO. Dominic McLaughlin mun leika Harry, Arabella Stanton verður Hermione og Alastair Stout tekur við hlutverki Rons. „Þau eru öll frábær. Ég gæti ekki verið ánægðari,“ skrifaði Rowling á X. Samskipti hennar við upprunalega leikaraþríeykið, Daniel Radcliffe, Emmu Watson og Rupert Grint, hafa verið stirð síðustu ár vegna deilna um transréttindi. Radcliffe og Watson hafa opinberlega gagnrýnt orðræðu Rowling, sem hefur staðið fast á sínu. Nánar á K100.is.