Góð viðbrögð hafa verið við viðleitni Grundarfjarðarbæjar, sem leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt á miðbæjarreit við Grundargötu. Þar, þvert í gegnum bæinn, er meginleiðin um Snæfellsnes og í næsta nágrenni eru kjörbúð og ýmsar þjónustustofnanir

Þéttbýli Grundarfjarðarbær og Kirkjufell. Sölulóðin í miðbænum er til vinstri, við Grundargötu sem liggur þvert í gegnum byggðarlagið.
— Ljósmynd/Grundarfjarðarbær
Sigurður Bogi Sævarsson
Góð viðbrögð hafa verið við viðleitni Grundarfjarðarbæjar, sem leitar eftir kauptilboðum í byggingarrétt á miðbæjarreit við Grundargötu. Þar, þvert í gegnum bæinn, er meginleiðin um Snæfellsnes og í næsta nágrenni eru kjörbúð og ýmsar þjónustustofnanir. Lóðin er um 2.580 m2 og talið mögulegt að reisa þar 2.300 m2 byggingu á reitnum. Bygging á reitnum má vera allt að 3 hæðir með möguleika á inndreginni 4. hæð.
Ríkar kröfur eru gerðar til viðsemjenda hvað varðar reynslu, hæfi og getu til að vinna verkefnið, segir Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri í Grundarfirði. Tilboð í lóðina verða opnuð nú í vikunni.
Gert er ráð fyrir að á umræddri miðbæjarlóð verði reist hús fyrir blandaða starfsemi, þjónustu og/eða atvinnustarfsemi
...