„Sumarið hefur byrjað frábærlega, miklu betur en í fyrra og undanfarin ár. Við bindum vonir við að þetta haldi áfram,“ segir Jakob E. Jakobsson, veitingamaður á Jómfrúnni. Aðeins er rúm vika í að tónleikaröðin Sumarjazz hefji göngu sína á Jómfrúnni við Lækjargötu
Veisla Veitingastjórinn Brynjólfur Óli Árnason skálar með Sigurði Flosasyni og Jakobi E. Jakobssyni á Jómfrúnni.
Veisla Veitingastjórinn Brynjólfur Óli Árnason skálar með Sigurði Flosasyni og Jakobi E. Jakobssyni á Jómfrúnni. — Morgunblaðið/Karítas

Höskuldur Daði Magnússon

[email protected]

„Sumarið hefur byrjað frábærlega, miklu betur en í fyrra og undanfarin ár. Við bindum vonir við að þetta haldi áfram,“ segir Jakob E. Jakobsson, veitingamaður á Jómfrúnni.

Aðeins er rúm vika í að tónleikaröðin Sumarjazz hefji göngu sína á Jómfrúnni við Lækjargötu. Þetta verður 30. sumarið í röð sem djassinn dunar á Jómfrúartorginu á laugardögum og fara fyrstu tónleikarnir fram laugardaginn 7. júní. Sem fyrr er tónlistarmaðurinn Sigurður Flosason listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar, en hann hefur sinnt því starfi næstum frá upphafi.

Hjá mörgum er það fyrir löngu orðið fastur liður á sumrin að tylla sér niður á Jómfrúartorginu á laugardögum og njóta góðra veitinga og frábærrar tónlistar. Veðrið

...