Bergþór Ólason
Bergþór Ólason

Oflæti getur reynst mönnum skeinuhætt í stjórnmálum og það er dómsmálaráðherrann að reyna þessi dægrin. Þegar ráðherrann ætlar svo að taka blaðsíðu úr bók aðstoðarmanns síns, sem áður starfaði við uppistand, getur staðan bara versnað. Það sáum við í vikunni.

Um liðna helgi ákvað dómsmálaráðherra að ráðast á Miðflokkinn og gera honum upp annarlegar hvatir í afstöðu sinni í útlendingamálum, tækifærismennsku og stöðvun mála á þingi er vörðuðu öryggi á landamærum Íslands. Önugheitin voru mikil og óútskýrð.

Hún sagði Miðflokkinn í málþófi, sem er þó í sjálfu sér hlægilegt og til marks um reynsluleysi ráðherrans í þingstörfunum enda miklar takmarkanir á ræðuhöldum þingmanna við fyrstu umræðu mála.

Þingmenn Miðflokksins komu auðvitað af fjöllum við þessar yfirlýsingar ráðherrans enda ekkert fjær sanni. Það dylst engum

...

Höfundur: Bergþór Ólason