
Margrét Hauksdóttir, húsmóðir og fv. ráðherrafrú, varð bráðkvödd í sumarhúsi sínu á Hallandaengjum í Flóa í fyrradag.
Margrét fæddist í Reykjavík þann 3. apríl 1955. Foreldrar hennar voru Jón Haukur Gíslason, bóndi á Stóru-Reykjum í Hraungerðishreppi, og Sigurbjörg Geirsdóttir húsfreyja.
Hún ólst upp á Stóru-Reykjum, gekk í Þingborgarskóla, sem var barnaskóli sveitarinnar, og síðan í Gagnfræðaskólann á Selfossi. Eftir að skólagöngu lauk á Selfossi fór hún í Húsmæðraskólann í Reykjavík.
Eftirlifandi eiginmaður Margrétar er Guðni Ágústsson, fv. alþingismaður og landbúnaðarráðherra. Dætur þeirra eru: Brynja, f. 7. mars 1973, gift Auðuni Sólberg Valssyni, börn þeirra eru Guðni Valur, Salka Margrét og Óliver Tumi; Agnes, f. 20. nóvember 1976, börn hennar eru Freyja og Snorri, faðir þeirra er Guðni Vilberg Björnsson;
...