
Skipulagsstofnun segir að kláfur sem fyrirtækið Eyrarkláfur ehf. áformar að leggja upp á Eyrarfjall ofan Ísafjarðar og byggingar á toppi fjallsins séu án fordæma hér landi.
Stofnunin hefur veitt álit á umhverfismatsáætlun Eyrarkláfs um framkvæmdirnar og segir að þær verði að langmestu leyti á óröskuðu svæði í hlíðum Eyrarfjalls og uppi á fjallinu í mikilli nálægð við þéttbýlið á Ísafirði.
Leggur Skipulagsstofnun áherslu á mikilvægi þess að umhverfismat feli í sér að birtar verði ljósmyndir frá tilteknum sjónarhornum sem sýni núverandi aðstæður á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði og síðan verði fyrirhugaðar framkvæmdir færðar inn á ljósmyndirnar til að freista þess að sýna ásýndarbreytingar með tilkomu framkvæmdanna. „Stofnunin hefur ekki góða reynslu af svokölluðum tölvugerðum þrívíddarmyndum,“ segir síðan í
...