Fyrirhugað er að breyta deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar í Reykjavík vegna breytinga á vinsælum þjónustureit. Áformað er að hækka húsin við Laugarnesveg 74A og Hrísateig 47 í þrjár hæðir auk þess að byggja við Hrísateig 47 suðaustanmegin
Stækkun Byggja á hæð ofan á bæði húsin til að styrkja gistirekstur þar.
Stækkun Byggja á hæð ofan á bæði húsin til að styrkja gistirekstur þar. — Morgunblaðið/Hákon

Höskuldur Daði Magnússon

[email protected]

Fyrirhugað er að breyta deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar í Reykjavík vegna breytinga á vinsælum þjónustureit. Áformað er að hækka húsin við Laugarnesveg 74A og Hrísateig 47 í þrjár hæðir auk þess að byggja við Hrísateig 47 suðaustanmegin.

Húsin tvö eru samliggjandi og að mestu í eigu sömu aðila að því er fram kemur í kynningu sem lögð var fram í borgarráði Reykjavíkur fyrir helgi.

Við Laugarnesveg er hinn vinsæli veitingastaður Kaffi Laugalækur í húsnæði þar sem Verðlistinn var um árabil en við Hrísateig er verslun Brauðs & co og afgreiðslustaður Matlands. Á efri hæðum húsanna er gististarfsemi.

„Ætlunin er að styrkja reksturinn og

...