Það viðraði vel til útreiða um helgina. Og vitaskuld var Sigrún Haraldsdóttir þar á ferð: Heilnæm var golan og himinninn blár, hófsóley brosandi og skær, fasmikil kona á fangreistum klár flengdist um vegi í gær
Pétur Blöndal
Það viðraði vel til útreiða um helgina. Og vitaskuld var Sigrún Haraldsdóttir þar á ferð:
Heilnæm var golan og himinninn blár,
hófsóley brosandi og skær,
fasmikil kona á fangreistum klár
flengdist um vegi í gær.
Og hún var ánægð með sig í sumarblíðunni:
Í djúpri sælu, á höstu hossi,
hugsandi um eigin snilli,
fór bústin kerla á brúnu hrossi
brosandi eyrna á milli.
Björn Ingólfsson sendi henni kveðju frá Grenivík:
Þótt hún sé á höltu hrossi
...