Heimsklassaviðburður fram undan á Tipsý næstu tvo daga

Svavar Helgi Ernuson veitingastjóri og barþjónn á Tipsý og Sævar …
Svavar Helgi Ernuson veitingastjóri og barþjónn á Tipsý og Sævar Helgi Örnólfsson, einn af eigendum Tipsý, eru orðnir mjög spenntir að fá teymið frá hinum heimsþekkta bar Salmon Guru í heimsókn. mbl.is/Karítas

Hinn heimsþekkti bar Salmon Guru í Madríd verður með pop up Tipsý bar & lounge við Hafnarstræti á morgun, fimmtudaginn 19. júní og föstudaginn 20. júní næstkomandi.

Salmon Guru er í 23. sæti á lista The World's 50 Best Bars og er þekktur fyrir meistarlega en gáskafulla nálgun á kokteilagerð. Staðurinn er leiðandi í þróun og nýsköpun kokteila í heiminum í dag og eru einkennisorðin hans „Aðeins dauðir laxar synda með straumnum.”

Aðrar hliðar á hugmyndafræði staðarins hafa komið fram í bókinni Guru, sem var valin besta kokteilabók heims á Gourmand-verðlaununum 2023, og nýja hlaðvarpinu „The Guru Show.“ Salmon Guro opnaði fyrsta staðinn í Madrid en hefur nú opnað í Mílanó og nýlega opnaði nýr staður í Dubai.

Einn sá áhrifamesti í kokteilaheiminum

„Við erum virkilega spennt að fá þá til okkar á þennan viðburð sem stendur yfir í tvo daga,“ segir Sævar Helgi Örnólfsson, einn af eigendum Tipsý. Hann er búinn að vera í bransanum í 12 ár og hefur tekið þátt og unnið til fjölda keppna bæði hérlendis og erlendis.

Diego Cabrera er einn sá áhrifamesti í kokteilheiminum í dag …
Diego Cabrera er einn sá áhrifamesti í kokteilheiminum í dag og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Ljósmynd/Aðsend

„Frá Salmon Guru í Madríd kemur stofnandi staðarins, Diego Cabrera. Diego er einn sá áhrifamesti í kokteilheiminum í dag og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Adrián Sehob, sem hefur fengið nafnbótina besti barþjónn Spánar og rekstrar- og meðstjórnandi, og Ana Perez markaðs- og viðburðarstjóri,“ bætir Sævar við.

Adrián Sehob hefur fengið nafnbótina besti barþjónn Spánar og rekstrar- …
Adrián Sehob hefur fengið nafnbótina besti barþjónn Spánar og rekstrar- og meðstjórnandi. Ljósmynd/Aðsend
Ana Perez markaðs- og viðburðarstjóri hjá hinum heimsþekkta bar.
Ana Perez markaðs- og viðburðarstjóri hjá hinum heimsþekkta bar. Ljósmynd/Aðsend

„Það er líka mikill heiður að fá til okkar í heimsókn aðila sem eru í farabroddi í barþróun í heiminum í dag og styðja við okkar stefnu en við erum að fara í sömu átt. Við erum hrikalega spennt að fá þessa aðila til okkar og gera Íslendingum kleift að upplifa þessa barstemningu sem þeir bjóða upp á.“

Sævar Helgi Örnólfsson, einn af eigendum Tipsý er reynslumikill í …
Sævar Helgi Örnólfsson, einn af eigendum Tipsý er reynslumikill í faginu. mbl.is/Karítas

Undir áhrifum þjóðarblóms Íslendinga

Gestirnir eru búnir að undirbúa sig vel fyrir heimsóknina til Íslands og ætla að gleðja þá sem koma á viðburðinn með nýjum kokteil.

„Í tilefni heimsóknarinnar hönnuðu Diego og spænski listamaðurinn Piñero sérstakt glas við fyrir viðburðinn, undir áhrifum þjóðarblóms Íslendinga, Holtasóleyjar sem þau komu með sér og verður virkilega spennandi að sjá,“ segir Svavar Helgi Ernuson veitingastjóri og barþjónn á Tipsý enn fremur en þeir félagar hafa staðið í ströngu að undirbúa viðburðinn.

„Á boðstólum verða fimm spennandi kokteilar að hætti Salmon Guru og að okkar mati má enginn kokteiláhugamaður láta viðburð fram hjá sér fara. Við störtum viðburðinum með alvörupartíi á morgun, 19. júní, þar sem Dj Rakel sér um tryllta tóna,“ segir Sævar sem er orðinn mjög spenntur fyrir viðburðinum.

Svavar Helgi Ernuson veitingastjóri og barþjónn á Tipsý vann keppn­ina …
Svavar Helgi Ernuson veitingastjóri og barþjónn á Tipsý vann keppn­ina um drykk árs­ins á kokteila­hátíðinni Reykja­vík Cocktail Week í ár. mbl.is/Karítas

Bæði Sævar og Svavar hafa heimsótt barinn í Madrid og segja upplifunina einstaka.„Heildarstemningin og andrúmsloftið er í bland við kokteila þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði í útliti, framsetningu, bragði og upplifun,“ segir Sævar.

„Það sem er mest heillandi við staðinn er framsetningin og staðurinn leggur mikla áherslu á að vinna með handverksfólki og listamönnum í hönnun glasanna sem eru í raun orðin meira eins og skúlptúrar.“

Barir og barþjónar á heimsmælikvarða

Erum við komin framarlega í barmenningu og í því að bjóða upp alvöru upplifun á bar, bæði hvað varðar drykki, áferð, útlit og framkomu barþjóna?

„Já, við erum klárlega með bari og barþjóna á heimsmælikvarða og það er mikill metnaður í íslensku barsenunni. Íslenskir barþjónar eru að standa sig vel í erlendum keppnum og eru að leggja mikinn metnað í þróun drykkja frá grunni,“ segir Svavar að lokum.

Fyrir áhugasama sem vilja njóta þessarar upplifunar þá er Tipsý staðsettur við Hafnarstræti 1-3 í hjarta miðborgarinnar og mun án efa bjóða upp á ógleymanlega upplifun þegar kokteilagerð er annars vegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka
OSZAR »