Rauði varaliturinn kórónaði glamúrinn í kampavínsgleðinni

Mikil gleði ríkti í sumarpartíi Kampavínsfjelagsins og má segja að …
Mikil gleði ríkti í sumarpartíi Kampavínsfjelagsins og má segja að rauði varaliturinn kórónaði glamúrinn. Ef konurnar voru ekki í rauðu þá skörtuðu þær rauðum varalit. mbl.is/Birta Margrét

Á dögunum stóð Kampavínsfjelagið fyrir kampavínspartíi með Camillu Rut á SKÝ þakbarnum, á Center Hótelinu við Arnarhvol við Ingólfsstræti 1, í hjarta höfuðborgarinnar. Tilefnið var að kynna kampavínið Piper-Heidsieck frekar og fagna sumrinu með stæl.

Camilla Rut er mikill aðdáandi Piper-Heidsieck og leikkonunnar Marilyn Monroe en sagan segir að Monroe hafi drukkið eitt glas á dag af þessu kampavíni og hafi hreinlega baðað sig upp úr því.

Kampavínið flæddi fram í orðsins fyllstu merkingu

Fullt var út úr dyrum og kampavínið flæddi fram í orðsins fyllstu merkingu. Rauði liturinn var þema kvöldsins og mátti sjá rauða varalit á nánast hverri konu en hann var líka uppáhaldsvaralitur Monroe. 

„Við elskum að skapa góðar minningar og þetta var eitt af þeim kvöldum sem maður man lengi eftir. Stemningin var alveg frábær og gleðin fylgdi okkur allan viðburðinn inn í kvöldið. Rauði varaliturinn kórónaði glamúrinn og dansgólfið sem myndaðist þegar leið á kvöldið skapaði þessa óaðfinnanlegu stemningu sem skilur eftir sig,“ sagði Camilla eftir kvöldið.

Styrmir Bjarki Smárason, Jóhanna Húnfjörð og Hrefna Sætran eru eigendur …
Styrmir Bjarki Smárason, Jóhanna Húnfjörð og Hrefna Sætran eru eigendur Kampavínsfjelagsins og voru ánægð með stemninguna sem ríkti í sumarpartíinu. mbl.is/Birta Margrét

Kvöldið heppnaðist frábærlega

„Eftir að Kampavínsfjelagið tók við dreifingu Piper-Heidsieck á Íslandi hefur samstarfið gengið afar vel. Piper-Heidsieck er þekkt alþjóðlegt kampavínsvörumerki sem hefur um árabil staðið fyrir glæsilegum og eftirminnilegum viðburðum um allan heimog það var einmitt innblásturinn að okkar viðburði hér á landi.

Markmiðið var skýrt: að kynna kampavínið fyrir gestum á einstakan hátt og færa þeim þá stemningu sem vörumerkið er þekkt fyrir. Við fengum Camillu til liðs við okkur í hugmyndavinnu og miðasölu, og gekk það vonum framar, viðburðurinn seldist upp á skömmum tíma.

Við getum með sanni sagt að kvöldið hafi heppnast frábærlega og gestir gengið glaðir heim – með minningar sem endast. Við hlökkum strax til að endurtaka leikinn á næsta ári,“ segir Styrmir Bjarki Smárason þegar hann varð spurður út í sumarpartíið.

Sjáið myndirnar frá kampavínsgleðinni:

 

Hrefna Sætran, Stefán Einar Stefánsson, Björn Árnason og Jóhanna Húnfjörð.
Hrefna Sætran, Stefán Einar Stefánsson, Björn Árnason og Jóhanna Húnfjörð. mbl.is/Birta Margrét
Vilhjálmur Ragnar og Jóhann.
Vilhjálmur Ragnar og Jóhann. mbl.is/Birta Margrét
Camilla Rut var veislustýra kvöldsins.
Camilla Rut var veislustýra kvöldsins. mbl.is/Birta Margrét
Berglind Rafnsdóttir og Hrund Jakobs.
Berglind Rafnsdóttir og Hrund Jakobs. mbl.is/Birta Margrét
Boðið var upp á rauðan varalit í stil við kampavínið.
Boðið var upp á rauðan varalit í stil við kampavínið. mbl.is/Birta Margrét
Bryndís Alexanders, Stefanía Sröfn, Oddný Arnarssdóttir, Katrín Ólöf og Ólöf.
Bryndís Alexanders, Stefanía Sröfn, Oddný Arnarssdóttir, Katrín Ólöf og Ólöf. mbl.is/Birta Margrét
Styrmir og Camilla opnuðu partíið með pomp og prakt.
Styrmir og Camilla opnuðu partíið með pomp og prakt. mbl.is/Birta Margrét
Rósa Ísveld.
Rósa Ísveld. mbl.is/Birta Margrét
Mikil gleði var í fyrirrúmi og skálað var í kampavíni.
Mikil gleði var í fyrirrúmi og skálað var í kampavíni. mbl.is/Birta Margrét
Boðið var upp á osta- og kjötveislu sem paraðist vel …
Boðið var upp á osta- og kjötveislu sem paraðist vel með kampavíninu. mbl.is/Birta Margrét
Allt ætlaði um koll að keyra þegar Styrmir opnaði risa …
Allt ætlaði um koll að keyra þegar Styrmir opnaði risa kampavínsflöskuna og kampavínið sprautaðist í allar áttir. mbl.is/Birta Margrét
Ragna Sólveig og Steinun Kamilla.
Ragna Sólveig og Steinun Kamilla. mbl.is/Birta Margrét
Valli Gunnlaugssin og Camilla Rut.
Valli Gunnlaugssin og Camilla Rut. mbl.is/Birta Margrét
Ragnar Þórhallsson og Valli Gunnlaugsson.
Ragnar Þórhallsson og Valli Gunnlaugsson. mbl.is/Birta Margrét
Skálað!
Skálað! mbl.is/Birta Margrét
Camilla Rut og kampavínið.
Camilla Rut og kampavínið. mbl.is/Birta Margrét
Rauði liturinn var alls staðar í forgrunni.
Rauði liturinn var alls staðar í forgrunni. mbl.is/Birta Margrét
Krásir og með þeim.
Krásir og með þeim. mbl.is/Birta Margrét
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »