Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar deildi með fylgjendum sínum uppskriftinni að hinni einu sönnu perutertu eins og hún var gerð í gamla daga.
Þessi á vel við á hátíðardögum eins og 17. júní.
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
„Súkkulaðikremið er það besta að mínu mati og það er einfalt að útbúa þessa dásemd. Alveg tilvalið að bjóða upp á þessa tertu á þjóðhátíðardaginn sem fram undan er á morgun sem og aðra daga,“ segir Berglind sem ætlar að bjóða upp á eina svona í tilefni þjóðhátíðardagsins.
Perutertan á gamla mátan
Svampbotnar
- 5 egg
- 180 g sykur
- 100 g hveiti
- 60 g kartöflumjöl
Aðferð:
- Hitið ofninn í 175°C.
- Klippið bökunarpappír í botninn á 2 x 20 cm formum og spreyið vel að innan með matarolíuspreyi.
- Þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst, sigtið þá hveiti og kartöflumjöl saman við og blandið varlega saman.
- Skiptið deiginu niður í formin og bakið í 18-20 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.
- Kælið alveg áður en þið setjið súkkulaðikremið og perurnar á.
Súkkulaðikrem og skreyting
- 5 eggjarauður
- 60 g flórsykur
- 150 g Síríus suðusúkkulaði + 40 g til skrauts
- 400 ml þeyttur rjómi
- Um 400 g niðursoðnar perur + safi
Aðferð:
- Bræðið suðusúkkulaðið og leyfið því að ná stofuhita á meðan þið undirbúið annað.
- Þeytið eggjarauður og flórsykur þar til þykknar.
- Blandið bræddu súkkulaðinu varlega saman við eggjablönduna og vefjið síðan þeytta rjómanum saman við með sleikju.
- Skerið 4-5 helminga af perum niður í þunnar sneiðar og tvo helminga í fjóra hluta (til að setja á toppinn).
- Setjið fyrri botninn á kökudisk og um 8 msk. af perusafa yfir botninn til að bleyta upp í honum.
- Leggið næst þunnar perusneiðar yfir hann allan og um 1/3 af súkkulaðikreminu.
- Þá má næsti botn fara ofan á og restin af kreminu, dragið það varlega niður hliðarnar og þekið alla kökuna með kremi.
- Rífið eða saxið 40 g af suðusúkkulaði og stráið yfir toppinn, skreytið síðan með perum.
- Geymið í kæli í nokkrar klukkustundir áður en þið njótið kökunnar.
- Berið kökuna fram á hátíðlegan hátt.