Birria taco-ið hennar Ingunnar nýtur mikilla vinsælda

Ingunn Tómasdóttir er fræg fyrir að elda eitt besta birria …
Ingunn Tómasdóttir er fræg fyrir að elda eitt besta birria taco-ið að mati þeirra sem hafa smakkað og hefur slegið í gegn í ófáum matarboðum með réttinn sinn. mbl.is/Hákon

Ingunn Tómasdóttir eldaði fyrst Birria taco fyrir liðlega tveimur árum og sló heldur betur í gegn. Tveimur árum síðar er hún enn þá að fá beiðnir um að bjóða í Birria taco og jafnvel kenna vinum og vandamönnum að elda þennan rétt.

Uppskriftina fann hún á YouTube og fyrsta skiptið tókst svo vel að hún ákvað að gera þetta aftur. Hún er meira að segja búin að taka aðferðina upp og birta á TikTok sem hefur farið sigurför um miðilinn. Hún gefur lesendum uppskriftina að þessari dýrð sem án efa verður gaman að reyna að leika eftir.

Rétturinn er borinn fram með birria-soðinu ásamt fersku gvakamóle. Steiktu …
Rétturinn er borinn fram með birria-soðinu ásamt fersku gvakamóle. Steiktu tortillakökunum er svo dýft í soðið. mbl.is/Hákon

Ingunn er 32 ára gömul og kemur frá Akureyri en býr í Reykjavík í dag. „Ég hef búið í Reykjavík í að verða 11 ár. Ég vinn sem teymisstjóri á velferðarsviði Reykjavíkurborgar en samhliða því stunda ég framhaldsnám í mannauðsstjórnun. Þessa stundina nýti ég sumarfríið mitt í starfsnámi hjá Attentus. Það er því alltaf nóg um að vera hjá mér. Í þeim frítíma sem ég hef æfi ég kickbox hjá Reykjavík MMA og reyni að vera dugleg að eyða tíma með fólkinu mínu.“

Hefur dálæti á því að prófa nýja hluti í matargerð

Þegar Ingunn er spurð út í áhuga sinn á matargerð svarar hún því til að hún myndi líklegast ekki lýsa sér sem manneskju sem hafi mikla ástríðu fyrir matargerð. „Ég er meira fyrir einfaldleikann og oftast elda ég eitthvað sem er mjög fljótlegt og einfalt. En þrátt fyrir að vera ekki mikið að elda fyrir mig sjálfa þá elska ég að elda fyrir aðra og legg þá meiri metnað í matargerðina. Það er ávallt mun skemmtilegra að matreiða góðan mat fyrir alla aðra en sjálfan sig,“ segir Ingunn og brosir.

„Ég hef líka mjög gaman af því að prófa alls konar rétti og smakka mat þegar ég er í útlöndum, kynnast matarmenningu annarra þjóða. Oftast er það þannig að þegar ég smakka eitthvað sem mér finnst alveg ótrúlega gott er ég strax byrjuð að leita að uppskriftum til að líkja eftir hér heima. Til dæmis tók ég mig til og prófaði að gera lasanja eftir ekta ítalskri uppskrift og gerði allt frá grunni, nema parmesanostinn, sem lukkaðist afar vel.

Ég smakkaði líka chipotle í fyrsta skipti í fyrra og fannst kjúklingurinn svo hrikalega góður að ég þurfti að sjálfsögðu að finna uppskriftina að marineringunni og líkja eftir þessum rétti, en það heppnaðist líka mjög vel. Þannig að ég hef dálæti á því að prófa að gera alls konar mat og útgáfur sem er ekki endilega auðvelt að fá hér heima á Íslandi.

Það má því segja að ég hafi jafnframt gaman af því að matreiða og útbúa mat frá grunni,“ bætir Ingunn við.

Hvað finnst þér skemmtilegast að elda?

„Góð spurning, ég er ekki alveg viss, satt að segja. Eins og ég nefndi áðan heillar einföld matargerð mig almennt meira. Aftur á móti ef ég þyrfti að velja eitthvað eitt þá væri það líklegast pastaréttur. Það er bæði auðvelt að prófa sig áfram og gera eitthvað nýtt í tengslum við pastarétti, ætli það sé ekki það sem mér finnst skemmtilegast að matreiða.“

Kolféll fyrir réttinum sem vinkonan frá Mexíkó gerði

Notar þú TikTok mikið til að fá innblástur í matargerðina?

„Bæði og, ég hef nú þó mest notað YouTube því myndböndin þar eru bæði lengri og nákvæmari í framkvæmd. Ég hef samt verið að nota TikTok líka ef ég er með eitthvað sérstakt í huga sem mig langar að prófa. Hins vegar hef ég sjálf aðeins verið að prófa mig áfram í að gera matarmyndbönd á TikTok og það virðist vera mikill áhugi meðal notenda að sækja sér innblástur þangað.“

Birria taco-ið hennar Ingunnar er ómótstæðilega gott og galdur felst …
Birria taco-ið hennar Ingunnar er ómótstæðilega gott og galdur felst án efa í hægelduninni og að steikja tortillakökurnar upp úr soðinu. mbl.is/Hákon

Birria taco-rétturinn hennar Ingunnar sem hún afhjúpar hér fyrir lesendum Morgunblaðsins hefur þegar gert allt vitlaust á TikTok. Undirrituð frétti til að mynda af þessum rétti úti í bæ og þeir sem hafa smakkað segjast aldrei hafa bragðað jafn gott taco.

Aðspurð segir Ingunn að rétturinn eigi sér sögu. „Það er skemmtileg saga á bak við ástæðuna fyrir því að ég prófaði að elda þennan rétt í fyrsta skipti. Ég á tvær vinkonur sem eru frá Mexíkó og önnur þeirra bauð mér í mat þar sem hún eldaði sína útgáfu af birria taco.

Ég kolféll fyrir þessum rétti og varð mjög forvitin um hvort ég gæti búið þennan rétt til sjálf og fór strax að leita mér að einfaldri uppskrift sem ég gæti prófað. Ég fann eina á YouTube sem leit vel út en virkaði jafnframt nokkuð auðveld í framkvæmd. Hún heppnaðist nokkuð vel í fyrstu tilraun þó að ég segi sjálf frá en auðvitað voru smá byrjendamistök hér og þar fyrst,“ segir Ingunn og hlær.

Birria taco er ekta mexíkóskur réttur sem þarf að leggja …
Birria taco er ekta mexíkóskur réttur sem þarf að leggja natni í að matreiða. Kjötið þarf að sjóða þar til það rennur af beinunum og hreinlega bráðnar í munni. mbl.is/Hákon

Seinna ákvað ég að elda þennan rétt fyrir afmæli vinkonu minnar sem hafði boðið mér í birria taco fyrst. Það var smá pressa í þessu afmæli þar sem við vorum tvær íslenskar og hinir gestirnir allir frá Mexíkó. Ég viðurkenni að ég fékk smá kvíðahnút í magann þegar ég áttaði mig á því að ég væri að elda klassískan mexíkóskan rétt fyrir fólk sem veit nákvæmlega hvernig hann á að vera án þess að ég hefði í raun smakkað „alvöru“ birria taco sjálf. En ég á það til stundum að vera full sjálfstrausts og viti menn, þetta heppnaðist blessunarlega ótrúlega vel. Ég fékk meira að segja að heyra að þetta væri eitt besta birria taco sem þau hefðu smakkað. Það er risastórt hrós þegar maður fær það frá fólki sem veit nákvæmlega hvernig þessi matur á að vera.

Gerði TikTok- kennslumyndband

Nú eru liðin tvö ár síðan ég eldaði þennan rétt fyrst og ég er enn þá að fá beiðnir um að bjóða í birria taco og kenna vinum og vandamönnum að útbúa þennan rétt. Ég ákvað líka að prófa að gera íslenska útgáfu af réttinum og notaði íslenskt lambakjöt í staðinn fyrir nautakjöt eins og er vanalega notað í þennan rétt úti og síðan þá hef ég einungis eldað þetta með lambakjöti.

Mér finnst lambið gefa réttinum mun betra bragð en nautakjötið gerir og ég mæli hiklaust með því að fólk prófi að nota lambið í réttinn. Ingunn ákvað að fara skrefinu lengra og gera TikTok-myndband af sér að útbúa þennan rétt þar sem margir hafa óskað eftir því að fá kennslu og það hefur heldur betur slegið í gegn. Fyrir áhugasama má sjá myndbandið á TikTok undir heitinu: ingunnjulia eða sjá hér fyrir neðan.

@ingunnjulia Auðveld og sjúklega góð uppskrift af Birria tacos 🌮 og vandræðalegt voiceover #fyrirþig #fyp #íslenskt #iceland #2025 #birria ♬ sonido original - SONIDOS LARGOS

Uppskriftin er frekar stór og ekkert mál að helminga hana að sögn Ingunnar. „Það er nánast alltaf afgangur og þá er mjög gott að skipta henni niður og frysta. Þetta er nefnilega frábær súpa á köldum degi og hægt að bæta við til dæmis hrísgrjónum eða hverju sem er, þannig að það er hægt að gera meira en bara tacos með birria-soði.

Ég geri alltaf smá ferskt gvakamóle með þessu og set í taco-ið, mér finnst ómissandi að hafa það með en auðvitað velur hver og einn fyrir sig hvað hann vill,“ segir Ingunn að lokum.

Ingunn fann uppskriftina á YouTube og fyrsta skiptið tókst svo …
Ingunn fann uppskriftina á YouTube og fyrsta skiptið tókst svo vel að hún ákvað að gera þetta aftur. Hún er meira að segja búin að taka aðferðina upp og birta á TikTok sem hefur farið sigurför um miðilinn. mbl.is/Hákon

Birria taco að hætti Ingunnar

Birria-soð

  • 20 bollar af vatni í stóran súpupott
  • 10 stk. þurrkaður guajillo chili-pipar
  • 10 stk. lárviðarlauf
  • 2 stk. laukar
  • 1–2 stk. hvítlaukar
  • 10 stk. gulrætur
  • 1 poki af súpukjöti (sirka 2 kg) eða 1 pakki ungnautarif og 500 g af chuck-steik
  • 3 msk. af kjúklingakrafti (ég nota duftið frá Oscar)
  • 1 msk. salt

Taco

  • Maístortilla (ég nota þær sem eru merktar „for frying“ því þær verða stökkari)
  • rifinn ostur
  • saxaður laukur
  • söxuð kóríanderblanda
  • límóna

Aðferð:

  1. Byrjið á að setja 20 bolla af vatni í góðan súpupott.
  2. Hreinsið fræin úr guajillo-piparnum og setjið hann í pottinn ásamt lauk, hvítlauk, lárviðarlaufi, helming af gulrótunum eða fimm stykkjum og kjötinu og kryddið loks með öllum kryddunum.
  3. Hrærið aðeins saman og látið sjóða á miðlungshita í um það bil 60 mínútur með lokið yfir pottinum.
  4. Þegar klukkustund er liðin takið þá guajillo-piparinn úr pottinum og setjið hann í blandara ásamt svolitlu af vatninu.
  5. Ingunn bætir jafnframt örlitlu af lauk, hvítlauk og gulrót með í blandarann en það er ekki nauðsynlegt.
  6. Maukið vel í blandaranum.
  7. Þegar þetta er búið að maukast vel er blöndunni hellt aftur út í pottinn.
  8. Bætið síðan hinum helmingnum af gulrótunum við eða fimm stykkjum.
  9. Látið malla í pottinum í um það bil 2½–3 klukkustundir. Þegar sá tími er liðinn ætti að vera gott lag af fitu ofan á soðinu.
  10. Fitan er mikilvæg fyrir bragðgæðin á réttinum þannig að það er nauðsynlegt að vera með fituríkt kjöt og helst á beini í þessum rétti.
  11. Takið kjötið upp úr pottinum og rifið niður í fat eða skál.
  12. Geymið soðið í pottinum eða skál en það notið þið þegar tortillakökurnar eru steiktar.
  13. Næsta skref er samsetningin.
  14. Hitið pönnu, takið tortilluköku og dýfið henni í soðið.
  15. Þar kemur fitan við sögu því við notum fituna til að steikja kökurnar upp úr.
  16. Þá fáið þið þennan fræga appelsínugula lit sem gefur enn þá betra bragð og gerir kökurnar djúsí og stökkar.
  17. Á meðan kakan er á pönnunni setjið þá á hana rifinn ost, rifið kjöt, lauk og kóríander ásamt ferskum límónusafa og lokið henni.
  18. Steikið þangað til hún er orðin stökk. Þegar búið er að steikja allar kökurnar er restin af soðinu sett í litlar skálar fyrir hvern og einn og gott er að strá yfir smá lauk, kóríander og límónusafa.
  19. Berið fram og þegar þið borðið taco-ið dýfið því þá í soðið og njótið.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »