Eitt af mínum uppáhaldssumarsalötum er þetta vatnsmelónusalat með myntu og fetaosti. Mynta og melóna passa svo vel saman og eiga vel við þegar sólin skín. Það þarf ekki mörg hráefni í þetta salat og síðan er líka sáraeinfalt að gera það. Salatið er fallegt og gaman að bera það fram.
Ég kaupi mikið af myntu fyrir sumartímann, nýti í þetta salat og líka út í sódavatnið. Sá drykkur sem mér finnst mest svalandi að njóta í hita er ískalt sódavatn með myntu og límónusneiðum.
Myntan er fersk og bragðgóð og líka falleg til að skreyta með.
Ljósmynd/Aðsend
Vatnsmelónusalat með myntu og fetaosti
- 1 vatnsmelóna, skorin í munnbita
- 15 ml sítrónusafi (safi úr 1 meðalstórri sítrónu)
- Sítrónubörkur rifinn niður, eftir smekk
- 10 g fersk VAXA mynta, gróflega söxuð (aðeins meira til skrauts)
- 45 ml ólífuolía (gott að dreifa aðeins auka yfir í lokin)
- Salt og ferskmalaður svartur pipar, eftir smekk
- 110 g fetaostur
- Valkvætt – Eitt box af VAXA klettasalati. Mjög gott að bæta við klettasalati fyrir meira bragð.
Aðferð:
- Byrjið á því að skera vatnsmelónuna í hæfilega stóra bita sem passa vel í salat.
- Setjið síðan vatnsmelónubitana í stóra skál.
- Rífið niður sítrónubörkinn með rifjárni.
- Hellið sítrónusafa og helmingnum af börknum saman við melónubitana. Gott þó að smakka til svo salatið verði ekki of súrt.
- Bætið við söxuðu myntunni, gott að eiga nokkur lauf eftir í lokin fyrir skraut, ólífuolíunni og klettasalati ef það er notað.
- Blandið öllu varlega saman þar til myntan og olían dreifist yfir melónubitana.
- Kryddið létt með salti og pipar, munið að fetaosturinn bætir við salti svo verið spar á saltið yfir salatið.
- Setjið salatið á fallegt fat eða í stóra skál, dreifðu fallega úr því.
- Myljið síðan fetaostkubbinn yfir.
- Stráið restinni af sítrónuberkinum og myntunni yfir.
- Einnig er gott að smakka til og bæta við ólífuolíu og svörtum pipar eftir smekk.
- Berið strax fram og njótið með því sem hugurinn girnist.