Unnur Pálmarsdóttir, eigandi Fusion og hóptímaþjálfari, deilir reglulega með lesendum matarvefsins uppskriftum að suðrænum og ljúffengum drykkjum sem lífga um á daginn. Það er fátt betra en að byrja daginn á fallegum drykk í glasi sem fangar augu og munn.
Hér er á ferðinni mangó-drykkur Unnar sem ber heitið Sá græni og er það nafn með rentu. Í honum er meðal annars mangó, spínat, mynta og chia-fræ.
Sá græni
Fyrir 1-2
- 1 bolli ferskt eða frosið mangó
- 1-3 bollar spínat
- ¼ bolli mynta
- ½ bolli kókosvatn
- 1 msk. chia-fræ
- 1 handfylli af klökum
Aðferð:
- Skolið hráefnin.
- Skerið mangóið í litla bita.
- Skerið spínatið aðeins niður.
- Fjarlægið myntulaufin af stilkunum og skolið þau með vatni.
- Setjið öll innihaldsefnin í blandara.
- Blandið á hæsta hraða í um það bil 30-60 sekúndur.
- Hellið í viðeigandi glös og stráið chia-fræjum yfir þeytinginn að vild.
- Berið fram þeytinginn og njótið.