Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks í fótbolta, er búinn að þróa og setja saman sinn uppáhaldsfiskrétt með Fiskversluninni Hafinu. Höskuldi er margt til lista lagt, hann er líka bakari og þegar hann er ekki að spila fótbolta er hann að matreiða eða baka.
Á dögunum kynnti Fiskverslunin Hafið í Hlíðasmára í Kópavogi í samstarfi við Höskuld nýjan fiskrétt sem ber heitið „Fyrirliðinn“.
„Samstarfið kom þannig til að Höskuldur er fastur viðskiptavinur hjá okkur í Fiskversluninni Hafinu Hlíðasmára og hefur verið í dágóðan tíma. Uppspretta þessarar hugmyndar okkar var að ég hef verið að hvetja til fiskneyslu og viljað efla til þess hjá fólki í íþróttahreyfingunni um land allt. Við sáum tækifæri í því að fá sterka fyrirmynd og heilsusamlegan afreksíþróttamann með okkur í það verkefni og var Höskuldur mjög áhugasamur um samstarf,“ segir Bjarki Gunnarsson hjá Hafinu.
„Hugmyndin að réttinum er þannig til komin að Andri Ásberg, hér hjá Hafinu, og Höskuldur voru að tala sín á milli um uppáhaldsmat Höskuldar. Rétturinn er því innblásinn af matarástríðu Höskuldar.
Höskuldur talaði þá um að hann borðaði alltaf fisk daginn fyrir leik, ásamt byggi sem er ein af hans uppáhaldsfæðutegundum. Jafnframt talaði hann um að tómatlagaðir pastaréttir og lasanja þætti honum einnig mjög gott. Þannig hófst hugmyndavinna þeirra á milli að koma þessum hráefnum saman í fiskrétt,“ segir Bjarki enn fremur.
„Útkoman var þorskur í rjómalagaðri tómatínó-sósu, með byggi, brokkólí og rótargrænmeti,“ segir Höskuldur og er mjög ánægður með lokaútkomuna. „Síðan er það mitt persónulega mat að rétturinn sé enn betri með gratíneruðum osti. Algjört sælgæti að njóta,“ segir fyrirliðinn að lokum.