Unnur Pálmarsdóttir eigandi Fusion og hópþjálfari er snillingur að búa til holla og góða rétti sem bragðast vel. Hún deilir nú með lesendum matarvefsins uppskrift að Weetabix-próteindrauminum sínum.
„Ég er aðdáandi Weetabix próteins og hér er uppskrift sem gerir ljúffengan, saðsaman og bragðgóðan morgun- eða hádegisverð. Það er mjög einfalt að útbúa dásemdina kvöldið áður og láta það standa í ísskápnum yfir nóttina og er tilbúið um morguninn.
Þessi uppskrift virkar líka mjög vel með höfrum í stað Weetabix. Mér finnst gott að nota gríska jógúrt þar sem hún er saðsöm og góð. Þið getið líka prófað aðra möguleika,“ segir Unnur.
Weetabix-próteindraumurinn
Valfrjálst
Aðferð: