„Stórasta“ kokteilhátíð Íslands, sem ber líka enska heitið Stykkishólmur Cocktail Week, verður haldin í sumar og er þetta í fyrsta skiptið sem hátíðin stendur yfir í viku en ekki yfir eina helgi. Hátíðin fer fram dagana 16. júní til 22. júní næstkomandi og verður öllu tjaldað til að því fram kemur í tilkynningu frá Barþjónaklúbbi Íslands.
„Við erum að tala um einstaka upplifun á einum fallegasta stað Íslands. Ætlunin er að standa fyrir hátíð sem sameinar Hólmara, gesti og fagfólk í þessum bransa,“ segir Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands.
Hátíðin er haldin af veitingahúsum og ölstofum í Stykkishólmi ásamt Barþjónaklúbbi Íslands.Meðan á hátíðinni stendur verða sérútbúnir SCW kokteilaseðlar í boði á stöðunum sem taka þátt. Staðirnir munu einnig bjóða upp á fjölda viðburða tengda hátíðinni sem eru öllum opnir.
Staðirnir sem taka þátt eru eftirfarandi:
„Stærsti viðburður hátíðarinnar fer fram á sunnudaginn 22. júní næstkomandi þar sem leitin að besta kokteilnum í Hólminum hefst. Einnig fer fram einstaklingskeppnin „Stykkihólmur Cocktail Week Open“ - Hanastél í Hólminum þar sem sigurvegarinn hlýtur eftirsóttan titil - Meistari Meistaranna í Hólminum,“ segir Teitur að lokum sem er farinn að hlakka mikið til hátíðarinnar.
Allar upplýsingar varðandi hátíðina má finna hér.