Mathöllin Borg 29 leitar þessa dagana að metnaðarfullum aðilum í gott veitingapláss sem losnar fljótlega í höllinni að því fram kemur í fréttailkynningu frá höllinni.
Borg 29 opnaði vorið 2021 og hefur verið ein af vinsælustu mathöllum landsins. Hún er frábærlega staðsett í hjarta Borgartúnsins innan um iðandi atvinnulíf og í grennd við fjölmennar íbúabyggðir.
„Plássið sem er að losna er sérstaklega gott og býður upp á mikla möguleika,“ segir Ágúst Sverrir Daníelsson, framkvæmdastjóri Borg29.
Átta staðir eru starfandi í Borg29 og þar má finna fjölbreytta kosti í matargerð. „Við erum spennt að heyra frá flottum aðilum með metnaðarfullar hugmyndir,“ segir Ágúst enn fremur.
Áhugasömum veitingaaðilum er bent á að hafa samband við Ágúst í gegnum netfangið [email protected].