Margar laxveiðiár voru að opna síðasta sólarhringinn. Langá, Laxá í Aðaldal, Eystri og Ytri Rangá, Vatnsdalsá, Elliðaár og Haffjarðará. Hér er yfirferð yfir það helsta.
Níu laxar veiddust í dag á opnunardegi í Eystri Rangá. Góð dreifing var á fiskinum og vart varð við lax á flestum svæðum. Gunnar Skúli Guðjónsson, yfirleiðsögumaður var mjög sáttur við daginn og sagði laxinn í góðu standi og sérdeilis þykkur og flottur. Allir laxarnir voru tveggja ára fiskar á bilinu 78 upp í 90 sentímetrar.
Fyrsta laxinn í Eystri Rangá sumarið 2025 veiddi Björn Hlynur Pétursson á Rangárvaði. Raunar bætti hann um betur og landaði þremur löxum í dag, þar af 80 sentímetra hæng, sem mynd sýnir hversu þykkur og vel haldinn sá lax er.
Fyrstu laxarnir komu á land í Vatnsdalsá í dag. Veiði þar hófst síðdegis og var fjórum löxum landað. Þrír veiddust á neðsta veiðistað sem er Hnausastrengur. Það voru fallegir tveggja ára laxar. Svo vildi svo skemmtilega til að smálax veiddist í Stekkjarfossi sem er efsti veiðistaðurinn í Vatnsdalsá. Sá var sannkallaður smálax og mældist 55 sentímetrar. Alþekkt er að þeir sem eru mest að flýta sér úr hafi geta verið heldur rýrir.
Björn K. Rúnarsson einn af leigutökum Vatnsdalsár var mjög sáttur með opnunarvaktina. Lax er kominn í Álku og fiskar misstust í Smiðshyl og Torfhvammshyl, sem eru mjög ofarlega.
Eins og í Vatnsdal var byrjað þar að veiða síðdegis. Fjórir laxar komu á land og voru þeir á bilinu 80 til 87 sentímetrar. Eins og oft gerist í drottningunni var sett í einn mjög stóran og hann misstist eftir hálftíma viðureign. Þetta ævintýri átti sér stað í Fosspolli. Töluvert magn af smálaxi veiddist í Laxá í fyrra og því bundnar vonir við að ríflegar göngur verði af stórlaxi. Víða á landinu virðist þó bið á því að þær göngur láti sjá sig.
Veiði hófst í gærmorgun í Langá og veiddust þrír laxar á opnunardag að sögn Kristjáns Friðriksson, staðarhaldara í Langá. Fyrsta laxinn fékk Sigurjón Gunnlaugsson í Glanna og mældist hann 66 sentímetrar og var tekinn á Frances kón. Raunar daðraði veiðigyðjan ákaft við Sigurjón og þegar tveir dagar eru liðnir af opnun er hann með 75% af sumarveiðinni. Laxar á land eru fjórir og Sigurjón á þrjá þeirra. Kristján Friðriksson hefði viljað sjá heldur fleiri laxa í bók, en bætti svo við; „Sígandi lukka er best.“
Eins og við sögðum frá fyrr í dag veiddust níu laxar í Ytri í morgun. Þrír bættust svo við á seinni vaktinni, enda var partístund eða happy hour undir kvöld. Þetta er svipaður opnunardagur og í fyrra.
Opnunarhollið í Víðidal endaði með níu laxa. Veitt var í tvo og hálfan dag á átta stangir. Eftir góða fyrstu vakt, sem gaf fimm laxa var mjög rólegt. Ekki er mikið af laxi gengið í ána og ljóst að þar eins og víða horfa menn til þess að stóri straumurinn 27 júní þurfi að skila góðum göngum. Ef ekki þá er ljóst að tveggja ára laxinn hefur lent í áfalli í sjó. Enginn efaðist um að stórlax myndi sér í töluverðu magni í sumar eftir gott smálaxaár í fyrra.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |