Rauð flögg á loft eða bara seinkun?

Haust við Norðurá í fyrra. Mikil aukning varð á smálaxi …
Haust við Norðurá í fyrra. Mikil aukning varð á smálaxi sumarið 2024. Þá á að þýða mikið af tveggja ára laxi í sumar. En hvar er hann? Ljósmynd/AÞ

Allir áttu von á góðum göngum af stórlaxi í upphafi veiðitímans. Sú von virðist ekki vera að ganga eftir. Óhætt er að segja að rauð flögg eru á lofti í byrjun veiðitíma, eftir góða byrjun í Norðurá og Þverá. 

Laxá í Kjós hefur ekki enn komist á blað, en veiði þar hófst síðastliðinn sunnudagsmorgun. Laxá í Leirársveit núllaði fyrsta daginn, en óstaðfestar fréttir herma að sá fyrsti hafi komið á land í morgun. Þeir byrjuðu að veiða í gærmorgun.

Fyrsta vakt í Grímsá gaf engan lax. Dagurinn þar er þó ekki að kveldi kominn og þar hafa sést fiskar á nokkrum stöðum.

Veiðin í Norðurá hefur verið virkilega róleg eftir opnunina og er hún 45% minni en á sama tíma í fyrra. Nú hefur verið landað þar 66 löxum en voru 120 á þjóðhátíðardaginn í fyrra.

Miðfjarðará byrjar rólega. Þar eru komnir átta fiskar á land. Það er samt meira en í opnuninni í fyrra á sama tíma. Raunar munar þar bara einum laxi. 

Blanda er kominn með sex laxa en hún opnaði 5. þessa mánaðar. Það er laxi meira en á sama tíma í fyrra.

Gott vor og hlýr sjór gaf mönnum vonir um að lax myndi ganga snemma. Það hefur ekki gerst til þessa nema í litlu magni. Þá er það stóra spurningin hvort í fyrsta skipti í langan tíma rofni sú sterka fylgni sem verið hefur milli þess að sterkar göngur smálax, eins og var í fyrra skili auknu magni af stórlaxi ári síðar. Það er verið að lyfta rauðu flöggunum en þau kunna að verða fljót niður ef eitthvað breytist. En þetta er að koma mörgum á óvart og vægan kuldahroll setur að veiðimönnum.

Vissulega má tína til jákvæða hluti. Opnun í Kjarrá er komin með 24 laxa. Það er lax að veiðast í Straumunum, þar sem Hvítá og Norðurá mætast og í öllum þessum ám þar sem gengur rólega hafa menn séð eitthvað af fiski. Við skulum ekki örvænta en margir hafa áhyggjur.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »