Írska lögreglan hefur nú lokið við að taka skýrslur af 46 manns á Íslandi. Fimm írskir lögreglumenn tóku skýrslu af fólki sem gæti haft upplýsingar um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar, sem hvarf í Dyflinni þann 9. febrúar 2019.
The Irish Independent greinir frá og ræddi við Alan Brady yfirrannsóknarlögreglufulltrúa sem leiddi hóp írsku lögreglunnar.
Skýrslur voru teknar af fólki sem þekkti Jón Þröst, þar á meðal voru dæmdir glæpamenn, fjölskylda og vinir hans, auk pókerspilara hér á landi. Lagt var upp með að ræða við 58 einstaklinga en að endingu urðu skýrslutökurnar 46.
Jón Þröstur fór til Írlands til að taka þátt í pókermóti en hann er talinn hafa tapað hálfri milljón króna í póker skömmu áður en hann hvarf.
„Við tókum formlegar skýrslur af 46 einstaklingum. Við munum nú fara heim og meta gögnin sem við öfluðum,“ sagði Brady og bætti við að vinnan á Íslandi hafi verið til gagns fyrir rannsókn málsins.
„Við teljum að hvað sem kom fyrir Jón hafi gerst á Írlandi. En við höldum líka að svör við því hvað kom fyrir hann liggi innan íslenska samfélagsins.“
Brady sagðist ekki hafa útlokað neitt í máli Jóns Þrastar enn. Enn sé til skoðunar hvort Jón hafi verið myrtur, framið sjálfsvíg eða lent í slysi af einhverju tagi.
Uppi hafa verið ýmsir orðrómar, meðal annars um leigumorðingja sem hafi farið mannavillt.
Í viðtalinu minntist Brady á að Jón Þröstur var talinn hafa tapað hálfri milljón króna í póker skömmu áður en hann hvarf.
„Við staðfestum einnig að peningarnir sem hann tapaði voru sendir innan nokkurra klukkustunda frá fólki í pókersenunni á Íslandi,“ sagði Brady.
„Fólk hefur bent okkur á að honum gæti hafa verið gert mein af einstaklingum sem tengjast glæpastarfsemi. Við höfum kannað alla möguleika og það eru margar kenningar.“
Þá sagði Brady að lögreglan hefði rætt við fjölskyldu Jóns Þrastar sem hefur gagnrýnt störf lögreglunnar.
„Við funduðum með nokkrum úr fjölskyldunni og tókum skýrslur af nokkrum. Við byggðum brýr. Þau hafa gengið í gegnum gríðarlega sorg síðastliðin sex ár. Engin fjölskylda ætti að þurfa að ganga í gegnum slíkt. Við erum hér til að reyna frá svör fyrir þau.“
„Jón var góður maður. Hann hefði ekki gert flugu mein. Hann var stór maður en ekki árásargjarn maður. Hann var ekki reið manneskja. Það virðist ekki líklegt að hann hafi lent í slagsmálum,“ sagði Brady.
Hann sagði samstarfið við íslensku lögregluna hafa gengið mjög vel og þakkaði hann íslensku lögreglunni fyrir góð störf.
Að lokum hvatti Brady alla sem hafa upplýsingar um hvarf Jóns Þrastar að gefa sig fram við íslensku eða írsku lögregluna.