Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti ökumanni eftirför sem sinnti ekki stöðvunarmerkjum og ók á miklum hraða.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu og segir að ökumaðurinn hafi meðal annars ekið á móti umferð.
Hann var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og vistaður í klefa vegna málsins.
Fjórir einstaklingar voru handteknir grunaðir um ölvun við akstur og umferðaróhapp eftir að bifreið endaði inni í verslun.
Þeir voru allir vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar en rannsókn málsins snýst meðal annars að því hver var að aka bifreiðinni þegar bifreiðin endaði inni í versluninni.
Þá barst tilkynning um einstakling sem braust inn í fyrirtæki í miðbænum.
Hann yfirgaf vettvang þegar hann áttaði sig á því að það var fólk þar innandyra.
Einstaklingurinn fannst stuttu síðar þar sem hann var að reyna að brjótast inn í bifreið.
Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í klefa í þágu rannsóknar.