Landsréttur sýknar Pál af kröfum Aðalsteins

Páll Vilhjálmsson og Aðalsteinn Kjartansson.
Páll Vilhjálmsson og Aðalsteinn Kjartansson. Samsett mynd

Landsréttur sýknaði í dag Pál Vilhjálmsson, pistlahöfund og fyrrverandi blaðamann, af kröfum Aðalsteins Kjartanssonar, blaðamanns á Heimildinni, um ómerkingu fjölmargra ummæla og greiðslu miskabóta vegna færslna sem birtust á bloggsíðu Páls á tímabilinu frá apríl 2022 til apríl 2023.

Þetta kemur fram í dómi Landsréttar sem féll í dag, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt ummæli Páls ómerk.

Í færslunum fullyrti Páll meðal annars að Aðalsteinn hefði átt aðild að byrlun og þjófnaði á síma Páls Steingrímssonar skipstjóra í tengslum við umfjöllun um fyrirtækið Samherja. Hefur þetta mál verið kallað byrlunarmálið.

Aðalsteinn krafðist ómerkingar ummælanna og 450 þúsund króna í miskabætur, sem hann fékk í héraði. Páll áfrýjaði þeim dómi til Landsréttar sem hefur nú dæmt honum í vil.

Tjáningarfrelsið verji hann

Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að þótt ummæli Páls væru beinskeytt og óvægin yrði að líta til þess að Aðalsteinn hefði á þeim tíma haft stöðu sakbornings hjá lögreglu vegna rannsóknar á mögulegri aðild að brotum gegn friðhelgi einkalífs.

Þá hefði umræðan varðað málefni sem almenningur hefði ríkra hagsmuna að fá upplýsingar um og Páll notið verndar tjáningarfrelsis við skrif sín.

Í dómnum segir að Páll hafi mátt vera í góðri trú um að tilefni hefði verið til þeirra fullyrðinga sem hann lét falla og að þær hefðu ekki gengið svo langt að réttlæta ætti inngrip í tjáningarfrelsi hans. Var hann því sýknaður af öllum kröfum Aðalsteins, bæði um ómerkingu og miskabætur.

Málskostnaður fellur niður á báðum dómstigum.

Á síðasta ári sneri Landsréttur einnig við dómi héraðsdóms og sýknaði Pál í meiðyrðamáli sem Þórður Snær Júlí­us­son, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, og Arn­ar Þór Ing­ólfs­son blaðamaður höfðuðu gegn Páli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »