Framkvæmdir hafnar á skólaþorpi í Laugardal

Lóðavinna er hafin á bílastæðum á horni Reykjavegar og Engjateigs.
Lóðavinna er hafin á bílastæðum á horni Reykjavegar og Engjateigs. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Framkvæmdir eru hafnar á skólaþorpi sem reist verður á bílastæði á horni Reykjavegar og Engjateigs í Laugardal. Skólaþorpið mun hýsa nemendur úr Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla og Langholtsskóla.

Skólaþorpið er tímabundið úrræði þar til framkvæmdir á skólum í Laugardal eru yfirstaðnar. Stefnt er að tíu kennslustofur verði teknar í notkun nú í haust.

Þá er áætlað að síðari áfangi skólaþorpsins, sem inniheldur sex kennslustofur auk 900 fermetra einingahúss, verði tilbúinn vorið 2026, segir Gréta Þórsdóttir Björnsson, deildarstjóri nýbyggingardeildar Reykjavíkurborgar, í samtali við mbl.is.

Skólaþorpið er tímabundið úrræði á meðan framkvæmdir eru á grunnskólum …
Skólaþorpið er tímabundið úrræði á meðan framkvæmdir eru á grunnskólum í Laugardal. Teikning/Hornsteinar arkitektar

Mygla greinst í öllum skólunum

Mygla hefur greinst í öllum þremur grunnskólunum í Laugardal. Farið hefur verið í mótvægisaðgerðir og þrif til að bæta innivist og farið verður í viðhald og endurbætur þegar starfsemi verður flutt annað.

Viðhald skólanna er misaðkallandi en talin er mest þörf á endurbótum í Laugarnesskóla að sögn Grétu. Hluti nemenda úr Laugarnesskóla mun því stunda nám fyrst um sinn í skólaþorpinu.

Búið er að gera ástandsskýrslu á skólunum þremur og telur Gréta þörf á meiri háttar viðhaldi á skólunum.

Að sögn Grétu verður skólaþorpið ekki nægilega stórt til að hýsa börn úr skólunum þremur í einu. Þegar síðari áfanga framkvæmdanna lýkur komast öll börn úr Laugarnesskóla fyrir.

Ákveðin keðjuverkun

Gréta seg­ir að viðhalds- og end­ur­bótafram­kvæmd­um lokn­um á ákveðnum bygg­ing­um Laug­ar­nesskóla get­ur hluti nem­enda úr þeim skóla snúið aft­ur.

Við það losn­ar pláss í skólaþorp­inu fyr­ir börn úr öðrum skól­um og því næst er hægt að hefja nauðsyn­leg­ar fram­kvæmd­ir í næsta skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »