Matt Damon á Möðrudalsöræfum

Matt Damon er hér við tökur á kvikmyndinni Ódysseifskviðu.
Matt Damon er hér við tökur á kvikmyndinni Ódysseifskviðu.

Tökur á Hollywoodmyndinni Ódysseifskviðu standa nú yfir hér á landi. Þær hófust fyrir rúmri viku og eiga að standa yfir í 12 daga.

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu koma um eitt þúsund manns að tökunum hér, þar af eru um 450 íslenskir aukaleikarar. Leikstjórinn Christopher Nolan gerir miklar kröfur til samstarfsmanna sinna og þannig munu aukaleikarar hafa þurft að samþykkja ítarleg skilyrði um hegðun á tökustað. Fela þau meðal annars í sér bann við neyslu áfengis og eiturlyfja.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »