Leit hætt og frauðplast veitt úr sjónum

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur hætt leit í sjónum norður af Viðey eftir að vegfarandi hafði látið vita af einhverju hvítu í sjónum sem viðkomandi hélt að gæti verið kajak eða lítill bátur. Í sjónum var hins vegar einungis frauðplast sem líkur eru á að vegfarandinn hafi séð.

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir að frauðplastið hafi verið veitt upp úr sjónum og að leit hafi verið hætt laust eftir klukkan 9.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »