Fjárhagsaðstoð var 5,9 milljarðar

Umtalsverðir fjárstyrkir eru greiddir af Reykjavíkurborg.
Umtalsverðir fjárstyrkir eru greiddir af Reykjavíkurborg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heildarútgjöld velferðarsviðs Reykjavíkurborgar vegna ýmiss konar fjárhagsaðstoðar á árinu 2024 námu 5,9 milljörðum króna, en þar af fékkst 1.491 milljón endurgreidd frá ríkinu vegna fjárhagsaðstoðar til erlendra ríkisborgara. Þetta kemur m.a. fram í greinargerð fagsviða og sjóða A-hluta Reykjavíkurborgar sem lögð var fram í borgarráði með ársreikningi borgarinnar fyrir árið 2024.

Nettóútgjöld vegna fjárhagsaðstoðar til innlendra og erlendra styrkþega sem hafa átt lögheimili hér á landi lengur en í tvö ár námu í fyrra 2.867 milljónum og gjöld vegna sérstaks húsnæðisstuðnings námu 1.540 milljónum króna. Fram kemur í greinargerðinni að framangreind útgjöld hafi verið 8,8% innan fjárheimilda, en gert var ráð fyrir að 571 milljón til viðbótar færi í þennan málaflokk árið 2024.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »