Meirihlutinn klofnaði í afstöðu til Björns

Ekkert er því að vanbúnaði að Björn Gíslason sitji í …
Ekkert er því að vanbúnaði að Björn Gíslason sitji í menningar og íþróttaráði. Samsett mynd

Ekkert er því að vanbúnaði að Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, taki sæti í menningar- og íþróttaráði eftir að atkvæði var greitt um það í borgarstjórn í kvöld.

Klofningur var í meirihlutanum en þrír borgarfulltrúar Pírata lögðust gegn því að Björn tæki sæti í ráðinu en fulltrúar VG, Sósíalista, Samfylkingar og FF sátu hjá líkt og fulltrúi Viðreisnar úr minnihluta.

Tíu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lýstu sig hlynnta setu Björns í ráðinu og því féll atkvæðagreiðslan 10-3 en tíu fulltrúar sátu hjá.

Embættismenn efuðust um hæfi  

Málið á rætur sínar að rekja til þess þegar skrifstofustjóri borgarstjórnar fjallaði um hæfi Björns í minnisblaði til forsætisnefndar borgarstjórnar 6. mars 2023 en þá taldi skrifstofustjórinn, auk borgarlögmanns, Björn vanhæfan til að sitja í ráðinu vegna sjálfboðaliðastarfa hans fyrir Fylki.

Málið fór fyrir innviðaráðuneytið sem gerði enga athugasemd við setu Björns í menningar- og íþróttaráðinu og henti boltanum í raun aftur til borgaryfirvalda og sagði þeim að taka ákvörðun. Var það gert í kvöld með fyrrgreindum hætti.

Þorðu ekki að standa með embættismönnum 

Helgi Áss Grétarsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, telur að málið sýni að meirihlutinn hafi ekki þorað að standa með sínum embættismönnum.

„Að Pírötum undanskildum þá þorði meirihlutinn ekki að standa við það að segja að Björn væri vanhæfur. Það er kjarni málsins. Eftir álit innviðaráðuneytisins þá þorðu þeir ekki að halda því til streitu að útiloka hann frá þessu fagráði,“ segir Helgi.

Hann segir málið hafa verið ólýðræðislegt frá upphafi.

„Þú ert að kjósa fólk vegna reynslu þeirra og sérþekkingar og það er mjög sérstakt, í svona ráði sem snýr að íþróttamálum, að bara vegna þess að þú ert formaður íþróttafélags í tómstundum þínum megir þú ekki taka þátt í neinu sem tengist ráðinu. Jafnvel þó að þú sért pólitískt kosinn í sveitastjórn því þú hefur þessa sérþekkingu og reynslu,“ segir Helgi Áss.

Helgi Áss Grétarsson.
Helgi Áss Grétarsson. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »