Margrét Sanders, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, segir það koma sér á óvart að sveitarfélagið standi í greiðsluvanda gagnvart verktökum bæjarins í ljósi þess að Reykjanesbær hafi nýlega tekið lán fyrir fleiri milljarða.
Morgunblaðið greindi frá því í gær að verktakar sem vinna fyrir Reykjanesbæ væru ekki að fá greitt fyrir vinnu sína á tilsettum tíma, verktakarnir eiga sumir hverjir kröfur á hendur sveitarfélaginu sem hljóða upp á fleiri tugi milljóna.
Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og framboðið Bein leið skipa meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Sjálfstæðisflokkur sem Margrét leiðir í bænum fékk þó flest atkvæði í kosningunum fyrir þremur árum síðan.
„Þessi staða kemur á óvart að því leyti til að sveitarfélagið er búið að taka tvö milljarða króna skammtímalán og svo langtímalán upp á tvo og hálfan milljarð. Maður spyr sig bara hvernig fjármálastýring sveitarfélagsins sé. Hvar er planið? Þetta á ekki að koma á óvart, þetta eru framkvæmdir við ákveðna skóla sem hafa farið fram yfir áætlaðan kostnað,“ segir Margrét í samtali við mbl.is.
Þeir verktakar sem ekki hafa fengið greitt fyrir vinnu sína fyrir Reykjanesbæ hafa lýst því að sveitarfélagið greiði ekki dráttarvexti af skuldum sínum, án þess að samið sé um að dráttarvextirnir séu látnir niður falla.
„Menn eru að reyna að lágmarka skaðann en það þarf að semja við fólk. Það þarf að tala við verktaka og fyrirtæki og semja um það að greiða ekki vexti. Hér er bara stóri bróðir með valdbeitingu og ekkert annað. Þú getur ekki bara sleppt því að greiða dráttarvexti án þess að ræða við kröfuhafa,“ segir Margrét.
Margrét bætir því við að verktakarnir hafi sínar eigin skuldbindingar og það kosti því verktakana mikið ef að Reykjanesbær dregur það að greiða sínar skuldir til þeirra án þess að greiða af því þar til gerða vexti.
Verktakarnir sem Morgunblaðið ræddi við lýstu því yfir að þeir íhuguðu jafnvel brottflutning úr sveitarfélaginu vegna stjórnarhátta meirihlutans í bæjarstjórninni.
„Ég ætla að vona að stýringin á sveitarfélaginu batni og þá er framtíðin björt í Reykjanesbæ. Það skiptir máli hverjir stjórna. Reykjanesbær hefur öll tækifæri til þess að standa sig vel en þá verður stjórnunin að vera í lagi.“