Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) lýsa yfir miklum vonbrigðum með þá ákvörðun atvinnuvegaráðherra að samþykkja hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar (MAST) fyrir opinbert eftirlit um 30%.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SAFL.
Gjaldskrárbreytingar MAST tóku gildi síðasta sumar eftir að þeim hafði verið frestað ári áður. Hækkunina má rekja til viðamikillar greiningar á kostnaði og rekstri Matvælastofnunar, sem leiddi í ljós að gjaldskrá eftirlits endurspeglaði ekki kostnaðinn sem hlýst af eftirlitinu.
Hækkun gjaldskrárinnar nú nemur um 30% en í tilkynningu SAFL segir að með henni hafi eftirlitsgjald í sláturhúsum rúmlega tvöfaldast á 14 mánuðum með um 109% samanlagðri hækkun. Þá hafi gjald fyrir önnur verkefni hækkað um 47%.
Haft er eftir Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra SAFL, að um stökkbreytingu á eftirlitskostnaði matvælafyrirtækja sé að ræða og í sumum tilvikum margföldun frá því sem áður hafi verið.
Yfirlýst markmið gjaldskrárbreytinganna á sínum tíma voru meðal annars þau að auka gagnsæi og skýrleika og einfalda alla framsetningu, framkvæmd, stjórnsýslu og gjaldskrárbreytingar.
„Fátt af þessu hefur gengið eftir. Framsetningin er sannarlega einfaldari, en á kostnað skýrleika og gagnsæis. Í mörgum tilvikum vita eftirlitsþegar ekki fyrir hvað þeir eru nákvæmlega að greiða og ómældur tími hefur farið í yfirlegu og leiðréttingar á útsendum reikningum,“ er haft eftir Margréti.
Í tilkynningunni segir að MAST hafi þurft að bæta við starfsfólki vegna aukins flækjustigs við reikningagerð. Samtökin hafi verið gagnrýnin á nýtt fyrirkomulag og kallað eftir breyttu verklagi við eftirlit sem myndi draga úr kostnaði. Meðal annars hafi þau krafist þess að MAST fylgi eftir ákvæði laga um áhættuflokkun sláturhúsa, sem lögfest var árið 2019. Samkvæmt lögunum eigi áhættuflokkun að stýra tíðni og umfangi eftirlitsins.
„Enn í dag hefur MAST ekki lokið áhættuflokkun á einu einasta sláturhúsi. Framleiðendur eru því að greiða fyrir eftirlit sem er bæði óþarflega títt og kostnaðarsamt – í andstöðu við gildandi lög.
Með tilliti til þessa og að markmiðum breytinganna hefur sannarlega ekki verið náð, vekur það furðu að atvinnuvegaráðherra samþykki svo umfangsmikla hækkun á gjaldskránni án frekari skoðunar,” er haft eftir Margréti.