Fimmmenningarnir í Gufunesmálinu, þar sem hrottalegt ofbeldi í garð Hjörleifs Hauks Guðmundssonar leiddi til andláts hans, neituðu allir sök fyrir dómi í morgun.
Ríkisútvarpið greindi frá þessu.
Ákæra gegn fjórum karlmönnum og einni konu var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Eru þau ákærð vegna frelsissviptingar, fjárkúgunar og manndráps.
Stefán Blackburn, Lúkas Geir Ingvarsson og Matthías Björn Erlingsson eru sakaðir um manndráp og fjárkúgun.
Fjórði maðurinn er ákærður fyrir peningaþvætti og ung kona fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og rán.
Hjörleifur Haukur er sagður hafa verið ginntur fyrir tilstilli tæplega tvítugs kvenmanns í bifreið fyrir utan heimili sitt í Þorlákshöfn að kvöldi 10. mars.
Þar mættu honum fyrir þeir Stefán og Lúkas og virðist sem ofbeldið hafi hafist um leið og hann kom inn í bílinn, að því er fram kom í ákæru.
Matthías er sagður hafa hitt þá Stefán og Lúkas fyrir hjá Hellisheiðavirkjun þar sem Hjörleifur var færður í bifreið hans með poka á höfðinu.
Þaðan var honum ekið að iðnaðarhúsnæði á Kjalarnesi þar sem misþyrmingarnar héldu áfram. Undir ofbeldinu kröfðu þeir Hjörleif ítrekað um aðgangsorð að heimabanka.
Þá var Hjörleifi ekið að leiksvæði í Gufunesi þar sem hann var meðal annars dreginn eftir göngustíg.
Um klukkan tvö að næturlagi komust ofbeldismennirnir inn á bankareikning Hjörleifs og tóku út um þrjár milljónir króna.
Hjörleifur fannst svo rétt fyrir hálf átta um morguninn á stígnum í Gufunesi. Var honum komið á sjúkrahús þar sem hann lést.
Peningarnir voru lagðir inn á reikning fjórða mannsins, sem einnig er ákærður í málinu fyrir peningaþvætti, en þaðan fóru peningarnir inn á reikning Matthíasar Björns.
Unga konan er einnig ákærð fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og ráni.
Fréttin hefur verið uppfærð.