Færri ferðamenn en meiri tekjur

Ferðamenn í Reykjavík.
Ferðamenn í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Færri ferðamenn heimsóttu Ísland fyrstu fimm mánuði ársins en á sama tímabili í fyrra. Þó hafa bæði erlend kortavelta og útflutningstekjur af ferðaþjónustu aukist á sama tíma.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans.

Fleiri en 721.000 ferðamenn hafa komið til landsins á þessu ári, eða 3,9% færri en fyrstu fimm mánuði ársins 2024.

Ferðaþjónustan skilaði meiri útflutningstekjum á sama tíma og erlendum ferðamönnum fækkaði.

„Í stuttu máli benda gögnin til þess að í fyrra hafi hver ferðamaður að meðaltali eytt fremur litlum pening hér á landi og gist skemur en áður. Í byrjun þessa árs hafi neyslugleðin aukist þó nokkuð,“ segir í greiningu Landsbankans.

Kortavelta hvers og eins hafi þannig aukist nógu mikið á árinu til þess að skila auknum tekjum af ferðaþjónustu á sama tíma og ferðamönnum fækkaði.

Ferðamenn mögulega vantaldir

Þrátt fyrir þetta bendir ýmislegt til þess að komur erlendra ferðamanna hafi verið vantaldar og utanlandsferðir Íslendinga oftaldar, að mati greiningardeildar Landsbankans.

Mögulega sé vanmat á fjölda erlendra ferðamanna sem fer um Keflavíkurflugvöll en mat á þjóðerni byggir á reglulegum úrtakskönnunum.

Gögn Isavia benda til að samanlögð umferð bæði Íslendinga og útlendinga um Keflavíkurflugvöll hafi ekki verið meiri frá árinu 2018.

Umferð um vegi landsins hefur einnig aukist á milli ára í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Gistinætur á Íslandi eru einnig fleiri fyrstu fjóra mánuði ársins en á sama tíma í fyrra en tölur um gistinætur eru ekki birtar eftir þjóðerni.

Að mati greiningadeildar Landsbankans bendir þetta til aukinna umsvifa í ferðaþjónustu á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »