Umferðartafir í Mosfellsbæ

Bílalestin er sögð ná frá Ártúnsbrekku og til Mosfellsbæjar. Mynd …
Bílalestin er sögð ná frá Ártúnsbrekku og til Mosfellsbæjar. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Miklar umferðartafir eru á Vesturlandsvegi vegna vegaframkvæmda og misskilnings tengdum þeim.

Frásagnir ökumanna herma að bílaröðin nái frá Ártúnsbrekku og inn í íbúðahverfi í Mosfellsbæ.

Vakthafandi upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir í samtali við mbl.is að tvennar framkvæmdir hafi hafist klukkan fimm við Vesturlandsveg og einar til viðbótar hafi hafist klukkan sjö.

Umfang tafanna megi rekja til mistaka þegar vegi við Laxalón sem einungis stóð til að þrengja var lokað og ökumönnum bent á hjáleið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »